Erna Valborg

0 notes

dagur tuttugu - vika þrjú

Langt er síðan ég bloggaði síðast, ástæðan er sú að það hefur verið upp fyrir haus að gera hjá mér, og ég hef heldur ekki nennt að blogga. 

Átti meistaraafmæli síðasta föstudag og lét stjana við mig, eins og meistara sæmir. Byrjaði daginn á því að fá afmælismorgunverð, tvöföld sæla í krukku og döðlukonfekt - sjúklega gott, fór svo til kíró, mætti svo á morgunfund í vinnunna og fékk afmælissöng. Var svo boðið í afmælispizzu til bróður mömmu og co og fékk afmælissönginn aftur og ostaköku með kerti sem Halldóra litla dúlla færði mér. Kvöldinu var svo eytt í hrúgu fyrir framan sjónvarpið, bara kósý! Notalegur en góður dagur. 

Helgin fór svo öll í lærdóm því það var lokapróf á mánudaginn. Fyrir utan tvo tíma á laugardaginn þegar elsku bróðir minn (jú axel, þú ert líka elsku) gaf mér flugferð í afmælisgjöf - besta gjöf ever!  

Fyrir utan svindlið á afmælinu (það má?) hef ég verið nokkuð stabíl. 

Fór í fótbolta í gær í rigningunni og það var hægt að vinda fötin mín þegar ég kom heim. Eitt orð - æðislegt! 

Morgunverðurinn

Pilot in command.

Co-pilot

Reykjavík.

Afmælisbarnið 2010, hefur kannski aðeins bæst við hrukkurnar, annars hef ég voða lítið breyst. 

Erna.

0 notes

Nýtt uppáhalds.

Shine a light through an open door
Love and life I will divide
Turn away cause I need you more
Feel the heartbeat in my mind

1 note

Karma.

Ég sofnaði seint og svaf illa þarsíðustu nótt svo ég ákvað að svindla þegar ég steig út í kuldann og taka strætó í vinnunna í staðinn fyrir að labba eða hjóla.

Á leiðinni í strætó fékk ég blóðnasir. Með hausinn hallandi aftur og putta fyrir nösinni, því ég var ekki með bréf, að passa að það drypi hvorki á mig né sætið sat ég í þær fimm mínútur sem eftir voru af strætóferðinni.

Ég trúi því að þarna hafi karma verið að verki.

Ég mun allavega hugsa mig vel um áður en ég svindla næst, thank you very many.

1 note

dagur tíu.

Þessi dagur var himneskur, matarlega séð. Byrjaði daginn á elsku hafragrautnum, í kaffinu var ferskur ávaxtasafi (epli, appelsínur, engifer og annað ljúfmeti) og í hádegismatinn fékk ég svo ótrúlega góðan steinbít. 

Það sem toppaði svo daginn minn var þetta líka unaðslega kjúklingasalat. Sérstaklega þar sem ég varð bensínlaus á leiðinni heim af æfingu. Náði að beygja inn á bílastæði rétt áður en ég kom að ljósum (annars væri ég ábyggilega þar enn) og fékk Unni til að sækja mig. Næsta bensínstöð er vandræðalega nálægt bílnum, eða þar sem hann stoppaði.

Salatið var guðdómlegt. Í alvöru. Eitt það besta sem ég hef smakkað.

Þið finnið uppskriftina hér.

Myndirnar eru samt hreyfðar. Ég var svo spennt að smakka það að ég gat varla tekið mynd. 

Svo sit ég núna og narta í möndlur og drekk vatnið mitt. 

Matarást.

0 notes

dagur níu - vika tvö

Fyrsta vikan búin og allt gengur framar vonum, ennþá. 

Erfiðast er samt að sofna á kvöldin, þótt ég hafi farið fram úr kl 7 og sé komin upp í rúm um 22 þá getur tekið óratíma að sofna. Skil ekki. Kannski því ég er svo spennt að vakna til að borða hafragrautinn minn. Hann er svoo góður, ég er í alvöru spennt að borða hann. Hann er samt voða einfaldur, haframjöl, kanill og vatn. Inn í öbba í 2 mín, skera niður hálft epli og setja út á = heaven. Ég er að segja ykkur það. 

Flutti fyrirlestur í skólanum í dag ásamt fjórum skvísum. Talaði fyrir framan hóp af fólki sem ég þekki ekki neitt. Steig þar með stórt skref útfyrir þægindarammann svo nú get ég allt, eða svona. Frekar mikill sigur að hafa ekki stamað, roðnað eða fallið í yfirlið. Tek að mér hér með að halda tölu á hverskyns skemmtunum. (djók, með þetta síðasta).

Annars elska ég þessa síðu, hún heldur mér gangandi. Hvetur mig áfram þegar mig langar að liggja heima og horfa á sjónvarpið. 

reasonstobefit.

Best að koma sér í háttinn, langur dagur á morgun. 

Góða nótt!

1 note

dagur sjö #meistaram

Einu sinni í mánuði er “afmælisveisla” fyrir afmælisbörn þess mánaðar, s.s. kökur í seinna kaffinu og í dag var dagurinn fyrir afmælisbörn októbermánaðar. Frönsk súkkulaðikaka var á boðstólnum. Kvíðinn var óbærilegur þegar ég frétti af kaffinu í morgun og var ég búin að plana margar flóttaleiðir til að þurfa ekki að fara upp á kaffistofu og feisa freistingarnar. En ég ákvað á endanum að láta mig hafa það og þessi dásemd beið mín.

Þegar ég kom upp var elsku Haddý, sú sem er í eldhúsinu, búin að skera niður jarðaber og taka fram vínberin fyrir sérvitringana. Svo diskurinn minn leit svona út, engin kaka. 

Í morgun labbaði ég í vinnuna, borðaði hafragrautinn með eplum og kanil þar (bragðast eins og eplakaka, eeh), fékk grænmeti með smá pastarétt í hádeginu, og rölti aftur heim eftir vinnu - so far so good. 

Æfing eftir klukkutíma og ég veit ekkert hvað ég á að borða eftir hana, hugmyndir vel þegnar.

Annars stefnir helgin í lærdóm og aftur lærdóm og kannski göngu á Esjuna ef ég næ að draga einhvern með mér, hef nefnilegast aldrei farið.

Góða helgi!

0 notes

dagur fimm.

Gærdagurinn var góður en þó ekki jafn mikið meistara eins og ég hafði planað. Vaknaði eldhress til að læra smá fyrir vinnu þar sem það hafði setið á hakanum sökum annarra anna. Rölti svo í vinnuna og borðaði hafragraut upp á kaffistofu með öðrum meistara. Góð byrjun.

Hádegismaturinn var alveg ágætis kjötsúpa.
Kvöldmaturinn var kjúklingavefja frá Ginger. Ég elska Ginger.

Eftir kvöldmat og vinnu lá leiðin svo í stelpubolta með öðrum stelpum úr vinnunni. Það var æði. Það eru liðin tæp 7 ár síðan ég var að æfa af einhverju viti, jiii hvað tíminn líður hratt. Þetta er alltaf jafn hressandi og skemmtilegt og ég get ekki beðið eftir næsta tíma. Synd að þetta sé ekki oftar en einu sinni í viku. :)

Eftir boltann henti ég mér í sturtu og fór svo með Sigrúnu vinkonu í heimsókn á barnaspítalann að kíkja á lítinn vin okkar og auðvitað foreldra hans. Það var yndisleg að hitta þau og sjá litla prinsinn aðeins, þið eruð hetjur!

Ég var komin heim um hálf 1 og átti þá eftir að læra smá - upp í rúm kl 22 stóðst því ekki alveg í gær.
Annað um syndir mínar, þá fór ég á bílnum í vinnuna í morgun því ég fer beint í skólann eftir vinnu. Ég verð aðeins að breyta markmiðunum í sambandi við það en tvo daga í viku þarf ég að fara á bílnum svo ég verði nú ekki of sein í skólann.


Léttsaltaður fiskur var í hádegismatinn í dag, sjúklega góður! mmm. Fékk mér samt aðeins of mikið á diskinn og náði varla að klára, þarf að passa skömmtunina betur, græðgin getur alveg farið með mann.

Meistarakveðjur.

0 notes

dagur fjögur

Þessi dagur er búinn að vera langur - og er ekki búinn enn. Var súper dugleg og hljóp smá fyrir vinnu í morgun, mætti svo galvösk á skyndihjálparnámskeið beint eftir vinnu (þar sem ég hef aldrei almennilega farið á svoleiðis) og er nýkomin heim. Upp í rúm kl 22 segja markmiðin en ég á enn eftir að læra smá, blogga í staðinn. Gott Erna.

Dagskráin fyrir morgundaginn er svo að vakna eldsnemma til að læra þar sem vinnudagurinn verður extra langur (9-19) og svo ég hafi tíma til að fara í stelpubolta eftir vinnu. Mikið að gera já, en þannig finnst mér best að hafa það. 

Skelli í betra blogg síðar - verð að henda mér í lærdóm áður en ég sofna fram á tölvuna. 

:)